12.3.2008 | 15:16
takk fyrir elskurnar :)
fékk loksins comment á færslurnar mínar... hehe
fór í dag og keypti mér 2 kjóla!!! já þið lásuð rétt annar svona fínn og hinn meira hversdags. Var svo heppin að ein konan sem ég vinn hjá ákvað að gefa mér 10þús króna bónus sem ég átti að nota í að kaupa mér föt
ég var akkurat á leiðinni í fataleiðangur þar sem ekkert passar á mig lengur sem ég á.
Freyja litla frænka er að fara að fermast helgina eftir páska.. já litla stelpan. Hún var rúmlega 9 mánaða þegar ég fermdist... eins og mér finnst það stutt síðan. Vorum einmitt að ræða fermingaföt á laugardaginn og hún sagðist vera búin að kaupa sér hvítan kjól. Oh hvað ég vildi að ég hefði fermst á "venjulegu" ári... fermingafötin mín voru svo mikill horbjóður!!!!!!!!!! guð minn góður. Kom þarna 1 ár þar sem sæblá spandex pils og kjólar þóttu ægilega ægilega töff. Var í svoleiðis pilsi, í fjólublárri renndri skyrtu og svartri peysu.. drepið mig ekki.. kanski eg skanni inn við tækifæri og sýni ykkur hvað ég var agalega fín
það eru svo 2 fermingar til viðbótar í fjölskyldunni og því alveg tilefni til að kaupa sér eitthvað af nýjum fötum
Erum líka að fara í 30 ára afmæli á laugardaginn.. Fylkir er að verða 30 ára og ég á fullu við að klára gullkornabókina hans Fylkirs haha. Hann er náttla svo fyndinn (veit hann les þetta pottþétt ekki!!) og verður því að setja þetta allt saman á einn stað í tilefni þess. Auðvitað er ég á síðasta snúning með þetta eins og allt... alveg allavega 1 ár síðan ég ætlaði að byrja að safna sögunum saman og auðvitað þegar að því kemur man maður ekki helminginn... þannig að ef einhver sem er að lesa þetta man góða sögu endilega láta mig vita..
jæja þar til næst
kv. Dagbjört
Um bloggið
döbbu blogg
Tenglar
smáfólkið
- Heiða Karen Lindu og Fylkirs dóttir
- Salka og Kolka dætur Emmu
- Kara og Alex gríslingarnir hennar Ólafar
- Björgólfur Bersi sonur Brimmzu og Kidda
- Salome og Gabríel gríslingarnir hennar Maríu F
- Eva María og Rakel Lilja stelpurnar hennar Maríu
- Thelma Karen og Stefán Einar gríslingarnir hennar Katrínar
- Ísak og Nökkvi tvibbarnir hennar Sonju
- Sara Rún sætasta músin
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 333
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
mikið er ég glöð að ég slapp við spandex fötin, ég var nefnilega í upphlut :D en endilega skannaðu inn mynd af þér á fermingardaginn, það verður alveg örugglega mikið fjör að skoða það :D
Emma (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 15:23
Fermingarfötin mín voru hreinn óbjóður. appelsínugult vesti, blúndubolur og svartar stuttbuxur.
Halla (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 08:37
Endilega skannaðu inn mynd af þér frá fermingunni. Væri gaman að sjá :) Fermingartískan hefur verið missmekkleg...þó ekki sé meira sagt ;)
Knús á þig, frænkukrútt.
SigrúnSveitó, 14.3.2008 kl. 08:21
Líst vel á þig að kaupa þér 2 kjóla :)
Sjáumst vonandi hressar og kátar hjá Fylki á morgun :)
Kv. Bubba
Bubba (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.