26.1.2008 | 23:17
og hvað
jæja ætla mér alltaf að reyna að vera duglegri í þessu en svo flýgur bara tíminn og ekkert gerist
En hvað er að frétta af manni??
* er að DREPAST í skrokknum!! held að þjálfarinn sé að reyna að ganga frá mér núna á síðustu vikunum!! Er með svona líka bilaða strengi að það hálfa væri nóg og mætti halda að ég væri ekkert búin að vera að hreyfa mig undanfarna mánuði.
* er ekki alveg að finna lærugírinn.. hann kemur þó væntanlega fljótlega... stefnan er tekin til mömmu á morgun þar sem hún ætlar að knúsa músina meðan ég kíki aðeins í bækur.. þýðir ekkert slór.
* nóg að gera á næstunni er að reyna að vera dugleg að heimsækja alla þessa dagana sem ég hef verið að draga síðustu mánuði
* næstu helgi er svo afmæli/innflutningspartý hjá syni páls... hlakka til.. langt síðan maður hefur gert eitthvað skemmtilegt og ætla að fá mér bjór! hef voða lítið gert af því síðan í haust.. maður tímir ekki að eyðileggja alla vikuna í þjálfuninni
ég held að barnið mitt sé orðið sjónvarpssjúklingur á háu stigi... hún vill helst bara horfa á skoppu og skrítlu og söngvaborg allan daginn ef það væri í boði. Er farin að rétta manni fjarstýringuna og dilla sér þegar hún vill að ég skipti.. ég má semsagt ekki horfa á neitt annað helst.
Var að láta taka síðuna hennar í gegn .. ekkert smá ánægð með útkomuna... vantaði alveg að "pimpa" hana smá upp.
jæja segi það gott í bili
eigið góða helgi
verð bara að bæta við þessa færslu... var á nýjustu síðunni minni sem ég stoppa á þessa dagana... www.gossip.is
finnst ykkur þetta ekki einum of? mér finnst þetta allvega ekki fallegt ...
38kg díses.... ALLTOF horaðar
Um bloggið
döbbu blogg
Tenglar
smáfólkið
- Heiða Karen Lindu og Fylkirs dóttir
- Salka og Kolka dætur Emmu
- Kara og Alex gríslingarnir hennar Ólafar
- Björgólfur Bersi sonur Brimmzu og Kidda
- Salome og Gabríel gríslingarnir hennar Maríu F
- Eva María og Rakel Lilja stelpurnar hennar Maríu
- Thelma Karen og Stefán Einar gríslingarnir hennar Katrínar
- Ísak og Nökkvi tvibbarnir hennar Sonju
- Sara Rún sætasta músin
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Samkvæmt alveg hrikalega áreiðanlegum heimildum *hóst* gossip.is þá báðar
skiptir svo sem ekki öllu hvað þær eru þungar... finnst þær bara of horaðar, sérstaklega miss beckham... orðin eins og hálfgerð geimvera.
Dabban, 28.1.2008 kl. 21:13
Ewww...þá er mar nú sáttari við sín auka kíló held ég bara. Myndi pesrónulega aldrei vilja leggja á mig að verða svona horuð. Og 38 kíló...er það ekki bara eitthvað óheilbrigt...hættir á þessu mánaðalega og ekkvað hmm...það er kannski markmiðið eða ég veit ekki.
Sonja (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.